Fréttir
Unglingum var selt áfengi í Hlíðarfjalli
11.03.2022 kl. 11:15
Framhaldsskólanemum í skíðaferð, 17 og 18 ára gömlum, var selt áfengi í Hlíðarfjalli fyrir skemmstu. Þeir voru sendir til síns heima þegar upp komst um kaupin og kvartað hefur verið við bæjaryfirvöld á Akureyri vegna málsins. Sala áfengis var heimiluð á skíðasvæðinu fyrir nokkrum vikum.
Ekki hefur verið fjallað með formlegum hætti um málið í bæjarkerfinu en rætt hefur verið við veitingamanninn. Bærinn mun ekki að aðhafast frekar nema atvikið verði kært til sýslumanns, skv. heimildum Akureyri.net. Ekki er ljóst hvort það verður gert.