Tólfti Þórssigurinn í röð í körfuboltanum
Sigurganga Þórskvenna í körfuboltanum heldur áfram. Í kvöld tryggðu stelpurnar 12. sigurinn í röð, þar af þann 10. í röð í Bónusdeildinni, þegar liðið sótti Aþenu heim í Reykjavík. Munurinn varð að lokum tíu stig eftir að Þórsliðið hafði leitt með 31 stigi seint í 3. leikhluta. Lokatölur urðu 95-85 Þór í vil.
Önnur ánægjulegu tíðindi dagsins voru svo að Eva Wium Elíasdóttir var með í leiknum, en hún tognaði á ökkla í sigurleik liðsins gegn Haukum fyrir viku. Vonandi verður hún nógu góð til að geta farið með landsliðinu í tvo leiki, í Tyrklandi 6. febrúar og Slóvakíu 9. febrúar.
Seinar af stað
Aþena leiddi framan af fyrsta leikhluta, komst í 6-0 og fyrsta karfa Þórs kom ekki fyrr en eftir tæpar þrjár mínútur. Þórsstelpurnar reyndar þekktar fyrir að skora mikið, mest allra liða í deildinni. Þegar leið á leikhlutann náði Þórsliðið forystunni, leiddi með þremur stigum að honum loknum. Aftur byrjaði Aþena betur í 2. leikhluta, en ekki leið á löngu þar til Þórsliðið tók leikinn í sínar hendur, vann 2. leikhluta með 14 stiga mun og leiddi því með 17 stigum þegar gengið var til búningsklefa, 58-41.
Tölfræðilínan hjá Maddie og reyndar fleirum í Þórsliðinu leit vel út eftir fyrri hálfleikinn. Maddie hafði þá hitt úr öllum skotum sínum, fjórum tveggja stiga og þremur vítum, komin með 11 stig, sjö fráköst og 21 stig í framlag. Natalia kom sem fyrr sterk inn af bekknum, skoraði 14 stig í fyrri hálfleiknum og var með 83% skotnýtingu, 3/3 úr tveggja stiga, 2/3 úr þriggja stiga og 2/2 úr vítum. Flestar í liðinu reyndar að hitta afar vel ofan í körfuna.
Aldrei spurning í seinni
Þegar seinni hálfleikurinn fór í gang var engin spurning um hvort liðið myndi sigra, munurinn orðinn 31 stig þegar mest var í þriðja leikhluta. Maddie hélt áfram að hitta úr öllum skotum þar til rúmar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhlutanum, þá búin að spila í nær 27 mínútur og komin í 16 stig, 6/6 úr tveggja stiga skotum og 4/4 úr vítum. Endaði svo með 87% skotnýtingu utan af velli og 100% úr vítum! Natalia var að vanda öflug, með yfir 83% skotnýtingu langt fram í þriðja leikhlutann.
Hinar þrjár sem byrjuðu á varamannabekknum, Adda Sigríður, Hrefna og Katrín Eva spiluðu á bilinu 11-15 mínútur, þar á meðal nýjasti leikmaður liðsins, Adda Sigríður Ásmundsdóttir, kornung og efnileg körfuboltastelpa úr Stykkishólmi.
Aþena náði svo að saxa á forskotið í fjórða leikhlutanum. Heimakonur skoruðu grimmt og settu 31 stig á móti 12 stigum Þórsliðsins, en það kom ekki að sök því leikurinn var í raun unninn eftir þrjá leikhluta.
Maddie Sutton var með ótrúlega tölfræði í leiknum, tvöfalda tvennu og frábæra nýtingu eins og áður sagði. Auðveldast að átta sig á framlagi hennar með því að skoða tölfræðina í einni runu.
MADDIE SUTTON GEGN AÞENU:
- 38:13 mínútur
- 20 stig – 7/8 úr tveggja stiga (87%) – 6/6 úr vítum (100%)
- 17 fráköst (16 í vörn)
- 7 stoðsendingar
- 18 í plús/mínus
- 40 framlagsstig
Amandine Toi var sem oft fyrr stigahæst í Þórsliðinu, skoraði 31 stig. Maddie með flest fráköstin og flestar stoðsendingar. Hjá Aþenu var það Violet Morrow sem skoraði mest, 27 stig og tók níu fráköst.
- Gangur leiksins: Aþena - Þór (23-26) (18-32) 41-58 (13-25) (31-12) 85-95
- Byrjunarlið Þórs: Amandine Toi, Emma Karólína Snæbjarnardóttir, Esther Fokke, Eva Wium Elíasdóttir, Maddie Sutton.
- Staðan í deildinni
- Ítarleg tölfræði leiksins
Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Amandine Toi 31 - 3 - 3
- Maddie Sutton 20 - 16 - 7 - 39 framlagsstig
- Natalia Lalic 14 - 7 - 0
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir 14 - 3 - 1
- Eva Wium Elíasdóttir 9 - 3 - 2
- Hrefna Ottósdóttir 3 - 1 - 0
- Esther Fokke 3 - 0 - 1
- Adda Sigríður Ásmundsdóttir 0 - 3 - 1
Þór fór upp að hlið Hauka á toppi Bónusdeildarinnar, en bæði lið hafa unnið 12 leiki. Haukar eiga leik til góða, mæta liði Grindavíkur á morgun. Grindvíkingar hafa verið að bæta við sig og skipta úr erlendum leikmönnum og gætu orðið toppliðinu erfiðar. Keflavík og Njarðvík koma í humátt á eftir Þór og Haukum, Keflavík með 11 sigra og Njarðvík tíu, en Njarvíkingar eiga leik til góða gegn Hamri/Þór annað kvöld.
Nú tekur við hlé á deildarkeppninni vegna landsleikja. Íslenska landsliðið fer til Tyrklands og Slóvakíu og má gera ráð fyrir að Eva verði í þeim hópi. Þá er Esther Fokke einnig á leið í landsleiki með landsliði Hollands. Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórs, verður einnig í landsliðshugleiðingum því hann tók við þjálfun U16 landsliðs kvenna í haust. Liði kemur saman til æfinga í febrúar.