Fara í efni
Fréttir

Þrjú ný póstbox á Norðurlandi

Svokölluðum póstboxum fjölgar sífellt. Nýlega bættust þrjú við á Norðurlandi og í næsta mánuði verða þau orðin alls 100 talsins á landinu. Póstboxin eru vinsælasti kosturinn hjá Póstinum, skv. upplýsingum fyrirtækisins.

„Fólk kann vel að meta að geta sótt pakka og póstlagt í póstbox hvenær sem er, árið um kring,“ segir Ósk Heiða Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptavina.

Nýlega bættust við póstbox á Þórshöfn, Siglufirði og í Ólafsfirði. „Uppsetning hefur gengið vonum framar og við höldum áfram að finna nýja staði fyrir póstbox og koma þeim fyrir á stöðum þar sem þörfin er hvað mest. Við hvetjum alla til að prófa að nota póstbox. Þetta ein þægilegasta og hagkvæmasta leiðin til þess að sækja og senda sendingar í dag,“ segir Ósk Heiða.