Fréttir
Þórhallur gefur kost á sér í 1. sætið
09.03.2022 kl. 14:45
Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Upphaflega stefndi hann á 2. til 3. sætið en snerist hugur og tilkynnti þessi nýjustu tíðindi í dag.
Þórhallur var kjörinn í bæjarstjórn fyrir fjórum árum. Hann hefur setið í skipulagsráði á kjörtímabilinu og verið formaður þess frá haustinu 2020.
Sjálfstæðismenn halda prófkjör um fjögur efstu sætin laugardaginn 26. mars. Þórhallur er sá þriðji sem stefnir á fyrsta sætið, áður höfðu Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri, og Heimir Örn Árnason, deildarstjóri, boðið sig fram í oddvitasætið.
Þórhallur hefur opnað vefsíðuna Allt að gerast þar sem hann kynnir sig og áherslumál sín.
- Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú þrjá bæjarfulltrúa – Gunnar Gíslason, og Eva Hrund Einarsdóttir, sem skipuðu tvö efstu sæti listans 2018 verða hvorugt í kjöri í vor.