Taka í notkun 35 nýjar rafhleðslustöðvar
Síðastliðið ár hefur Höldur - Bílaleiga Akureyrar unnið að uppbyggingu hleðsluinnviða á starfsstöðum fyrirtækisins í tengslum við aukna áherslu á orkuskipti í samgöngum og fjölgun visthæfra ökutækja í bílaflota fyrirtækisins. Keyptar voru 35 rafhleðslustöðvar af gerðinni Zaptec pro og nú þegar hefur verið lokið við uppsetningu á 32 hleðslustöðvum á eftirtöldum starfsstöðvum :
- Skútuvogur 8 Reykjavík, 20 stöðvar
- Fluggarðar 23 Reykjavík, 5 stöðvar
- Tryggvabraut 14 Akureyri, 3 stöðvar
- Lagarbraut 4 Egilsstaðir, 2 stöðvar
- Kjóavellir 4 Keflavíkurflugvelli, 2 stöðvar
„Samhliða uppsetningu á hleðslustöðvum var farið í framkvæmdir til að tryggja flutningsgetu raforku inn á starfsstöðvar fyrirtækisins. Lögð var ný 710A heimtaug að nýrri starfsstöð okkar að Skútuvogi 8 í Reykjavík og einnig var heimtaug að starfsstöðinni að Lagarbraut 4 á Egilsstöðum stækkuð. Með þessum framkvæmdum hefur fyrirtækið styrkt hleðsluinnviði sína umtalsvert og tekið enn eitt skrefið í aðkomu sinni að því stóra verkefni sem orkuskipti í samgöngum eru,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Höldur - Bílaleiga Akureyrar er leiðandi í útleigu visthæfra ökutækja, bæði í skammtíma og langtímaleigu. Í dag flokkast rúmlega 16% bílaflotans sem visthæfur þ.e. rafmagns og tengiltvinnbílar. Séu tvinn- og metanbílar teknir með er hlutfallið 26%. Okkur hjá Höldi - Bílaleigu Akureyrar er mikilvægt að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við samfélagið og umhverfið í heild. Við vinnum því að stöðugum umbótum í umhverfismálum til að lágmarka umhverfisáhrif af rekstri fyrirtækisins. Bílaleiga Akureyrar stuðlar að aukinni umhverfisvitund starfsmanna og leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda.“