Fara í efni
Fréttir

Styrktartónleikar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar

Kammerkórinn Hymnodia heldur styrktartónleika í Akureyrarkirkju í kvöld fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar, litlu stúlkunnar sem fannst látin við Krýsuvíkurveg fyrir skömmu.

„Hymnodia vill styðja við góðan félaga í kórnum og fjölskyldu hans eftir erfiðan missi ungrar stúlku, Kolfinnu Eldeyjar. Fjöldi vina kórsins úr hópi norðlensks tónlistarfólks slæst í för með Hymnodiu á styrktartónleikum sem haldnir verða í Akureyrarkirkju ... “ segir í tilkynningu frá kórnum.

  • Tónleikarnir hefjast kl. 20.00
Aðgangur verður ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum í reiðufé og með innleggi á söfnunarreikning. Þeir sem ekki eiga þess kost að fara á tónleikana geta vitaskuld lagt inn á reikninginn.
 
Bankareikningurinn:
 
  • 192 - 26 - 21239
  • Kennitala: 170483-4569
Þeir sem fram koma eru:
 
  • Anna Skagfjörð, söngur
  • Elvý G. Hreinsdóttir, söngur
  • Eyþór Ingi Jónsson, Hammond, píanó og stjórnun
  • Guðrún Arngrímsdóttir, söngur
  • Hallgrímur Jónas Ómarsson, gítar
  • Haukur Pálmason, trommur
  • Hildur Eir Bolladóttir, kynnir
  • Hymnodia
  • Ívar Helgason, söngur
  • Jón Þorsteinn Reynisson, harmóníka og söngur
  • Jónína Björt Gunnarsdóttir, söngur
  • Karlakvartettinn Ferund
  • Kór Akureyrarkirkju
  • Kristjana Arngrímsdóttir, söngur
  • Maja Eir Kristinsdóttir, söngur
  • Óskar Pétursson, söngur
  • Poppveislan, hljómsveit
  • Rakel Hinriksdóttir, ljóðalestur
  • Rúnar Eff, söngur
  • Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, orgel
  • Stefán Elí, söngur
  • Stefán Gunnarsson, bassi
  • Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló
  • Sumarliði Helgason, bassi
  • Trausti Ingólfsson, hljóð
  • Valgarður Óli Ómarsson, slagverk
  • Valmar Väljaots, píanó
  • Þorvaldur Örn Davíðsson, stjórnun
  • Þórhildur Örvarsdóttir, söngur

Í lokin sameinast allir flytjendur í lokalagi.