Fara í efni
Fréttir

Sparisjóðurinn hefur gefið út nýtt app

Einar Eiríksson forstöðumaður Bankalausna hjá Origo, Guðmundur Tómas Axelsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða (SÍSP) og Harpa Steingrímsdóttir hugbúnaðarsérfræðingur í fjártæknilausnum hjá Origo.

Sparisjóðurinn gaf á dögunum út nýtt app sem er þróað í samstarfi við Origo. Í Sparisjóðsappinu geta viðskiptavinir sinnt öllum helstu bankaviðskiptum á fljótlegan, einfaldan og öruggan hátt, að því er segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða (SÍSP).

Saga appsins byrjar sem lokaverkefni fjögurra nemenda í Háskólanum í Reykjavík sem unnið var í samstarfi við Origo. Eftir að verkefninu lauk í háskólanum var það þróað hjá fyrirtækinu og er í dag orðið að „glæsilegu appi fyrir Sparisjóðinn og eru strax komnir um þrjú þúsund notendur. Sparisjóðsappið er aðgengilegt bæði í App Store og Google Play fyrir viðskiptavini Sparisjóðsins,“ segir í tilkynningunni.

„Við völdum Origo sem okkar samstarfsaðila við að smíða og þróa Sparisjóðsappið. Í appinu getur þú sinnt öllum helstu bankaviðskiptum á fljótlegan, einfaldan og öruggan hátt. Móttökur viðskiptavina hafa verið frábærar og munum við leggja áherslu á að bæta reglulega við nýjungum í appið til að bæta þjónustuna við viðskiptavini,“ segir Guðmundur Tómas Axelsson framkvæmdarstjóri Sambands Íslenskra Sparisjóða.