Sólríkur september og mikill meðalhiti
Aðeins einu sinni hafa mælst fleiri sólskinsstundir í september á Akureyri en í nýliðnum mánuði, mjög lítil úrkoma var í mánuðinum og þá var meðalhiti í september hærri en að meðaltali tímabilið frá 1991 til 2020. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar.
- Meðalhiti á Akureyri í september var 8,7 stig, eða 0,7 stigum hærri en að meðaltali tímabilsins 1991 til 2020 og 0,6 stigum yfir meðallagi undanfarins áratugar.
Meðalhiti í Reykjavík í september var 9,3 stig. Það er 0,8 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 1,0 stigi yfir meðallagi síðustu tíu ára.
- Úrkoma var mjög lítil á Akureyri í september. Aðeins mældust 13,8 millimetrar í mánuðinum, eða um 26% af meðallagi áranna 1991 til 2020. Ekki hefur mælst eins lítil úrkoma í septembermánuði á Akureyri síðan árið 1994.
- Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri fjóra daga mánaðarins sem er fimm dögum sjaldnar en í meðalári.
- A Akureyri mældust 142,9 sólskinsstundir, sem er 52,5 stundum yfir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020.
- Aðeins einu sinni hafa mælst fleiri sólskinsstundir í septembermánuði á Akureyri, en það var árið 1976 þegar þær mældust 188,7.
Í Reykjavík mældust sólskinsstundir mánaðarins 147,6, eða 29,3 stundum yfir meðallagi septembermánaðar árin 1991 til 2020.
„September var hægviðrasamur og hlýr um nánast allt land. Á Akureyri var mánuðurinn bæði þurr og sólríkur, en aðeins einu sinni hafa mælst fleiri sólskinsstundir í september á Akureyri. Mög slæmt óveður gekk yfir landið dagana 24. og 25., í flokki þeirra verri í septembermánuði. Veðrið var verst á Norðaustur- og Austurlandi og olli talsverðum usla þar. Mikið foktjón varð, sérstaklega á Austfjörðum. Auk þess voru töluverðar samgöngutruflanir og rafmagnsleysi í þessum landshlutum. Sjór gekk á land á Akureyri og olli miklu tjóni,“ segir á vef veðurstofunnar.
- Meðalhiti sumarsins (júní til september) var 9,9 stig á Akureyri. Það er við meðallag sumranna 1991 til 2020 og 0,3 stigum undir meðallagi undanfarins áratugar. Meðalhiti sumarsins á Akureyri raðast í sæti 37 til 38 á lista 142 ára. Sumarið í fyrra var hlýjasta sumar frá upphafi mælinga á Akureyri. Í ár var sumarið þar að meðaltali 1,9 gráðum kaldara en í fyrra.
Meðalhiti í Reykjavík var líka 9,9 stig sem er 0,3 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 og 0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Reykjavík raðast meðalhiti sumarsins í 52. sæti á lista 152 ára.
- Sumarið var fremur þurrt á Akureyri. Heildarúrkoman mældist 109,8 mm sem er um 73 % af meðallagi sumranna 1991 til 2020 og 64% af meðalsumarúrkomu síðustu tíu ára þar.
- Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 621,1 í sumar (júní til september), 50 stundum fleiri en að meðaltali 1991 til 2020 og um 40 stundum fleiri en að meðallagi undanfarinn áratug.
Sólskinsstundir sumarsins mældust 685,4 í Reykjavík. Það er um 30 stundum yfir meðallagi 1991 til 2020 og 50 stundum yfir meðallagi undanfarins áratugar.
- Meðalhiti á Akureyri mældist 5,5 stig fyrstu níu mánuði ársins, sem er 0,3 stigum yfir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020 en 0,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn á Akureyri fyrstu níu mánuði ársins raðast í 20. sæti á 142 ára lista.
Meðalhiti í Reykjavík fyrstu níu mánuði ársins mældist 6,1 stig. Það er 0,1 stigi yfir meðaltali fyrstu níu mánaða áranna 1991 til 2020 en 0,1 stigi undir meðallagi þeirra undanfarinn áratug. Meðalhiti ársins hingað til í Reykjavík raðast í 29. til 30. sæti á lista 152 ára.
- Heildarúrkoma fyrstu níu mánaða ársins á Akureyri mældist 358,6 mm, eða við meðallag áranna 1991 til 2020 en um 90% af meðalúrkomu síðustu tíu ára.
Úrkomusamt hefur verið í Reykjavík það sem af er ári, en heildarúrkoma fyrstu níu mánaða ársins mældist 872,0 mm í Reykjavík. Það er um 42% umfram meðallag sama tímabils árin 1991 til 2020 og 36% umfram meðallag undanfarins áratugar. Aðeins tvisvar áður hefur heildarúrkoma janúar til septembermánaða mælst meiri í Reykjavík, en það var árin 1925 (897,0 mm) og 1921 (890,9 mm).