Fréttir
„Sniðganga“ verður í dag fyrir Palestínu
14.09.2024 kl. 06:00
Sniðgengið verður bæði á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu i dag, laugardag, til stuðnings Palestínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sniðgönguhreyfingunni á Íslandi. Gengið verður af stað kl. 14.00 á báðum stöðum, á Akureyri verður safnast saman við útilistaverkið Íslandsklukkana á lóð háskólans.
„Sniðgangan 2024 verður farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu og mikilvægi þess að sniðganga Ísrael og ísraelskar vörur þar til stjórnvöld í Ísrael lúta alþjóðalögum og virða frelsi og réttindi Palestínumanna,“ segir í tilkynningunni. „Sniðganga er áhrifamikil og friðsamleg leið til að sýna palestínsku þjóðinni samstöðu og taka afstöðu gagnvart þeim sem hagnast á landráni, hernámi og stríðsglæpum ísraelskra stjórnvalda.“
Vaxandi hreyfing
„Sniðgönguhreyfingin á Íslandi fer vaxandi dag frá degi. Í hreyfingunni er venjulegt fólk sem getur ekki horft aðgerðalaust á þjóðarmorðið í Palestínu og neitar að vera meðsekt í glæpum Ísraelsríkis. Sniðgönguhreyfingin á Íslandi – BDS Ísland leggur sérstaka áherslu á 7 vörumerki/fyrirtæki. Hægt er að afla sér upplýsinga um þau og um sniðgöngu almennt á vefsíðu sniðgönguhreyfingarinnar https://snidganga.is/“
Sniðgangan 2024 hefst á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri kl. 14 í dag, laugardaginn 14. september. Á Akureyri verður safnst saman hjá Íslandsklukkunni sem fyrr segir en á höfuðborgarsvæðinu í Hellisgerði í Hafnarfirði. Gangan á Akureyri er 2,8 km en 10 km á höfuðborgarsvæðinu. „Lengd göngunnar á höfuðborgarsvæðinu er táknræn að því leyti að sniðganga er í eðli sínu langtímaverkefni. Göngufólki er í sjálfsvald sett hvort það gengur alla leið. Einnig getur fólk alfarið sleppt göngu og mætt til fundar við göngufólk að göngunum loknum.“
Samkoma og ræðuhöld
Báðum göngunum lýkur með samkomu og ræðuhöldum. Göngunni á Akureyri lýkur á Ráðhústorginu kl. 15:15 með erindi, tónlist og Dabkeh-dansi. Göngunni á höfuðborgarsvæðinu lýkur í Katrínartúni í Reykjavík um eða upp úr kl. 17 með erindi og tónlist.
„Öll sem styðja málstað Palestínu eru hvött til að ganga á laugardaginn, annað hvort á höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri, en þau sem komast ekki þangað eru hvött til að ganga á sama tíma hvar sem þau kunna að vera stödd. Hægt er að nota myllumerkið #snidgangan til að merkja myndir og færslur sem tengjast viðburðinum á samfélagsmiðlum,“ segir í tilkynningunni frá Sniðgönguhreyfingunni.