Fara í efni
Fréttir

Slasaður gangnamaður sóttur með þyrlu

Gangnamaður slasaðist innarlega í Eyjafirði í dag og sækja átti hann með þyrlu. Þetta kemur fram á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Þar segir: „Um kl. 15:00 í dag fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um slasaðan gangnamann innarlega í Eyjafirði. Ljóst var strax að um krefjandi verkefni var að ræða í brattri hlíð og voru sjúkraflutningar á Akureyri og björgunarsveitir í Eyjafirði kallaðar út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Verið er vinna að því að koma viðbragðsaðilum á vettvang. Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.“

Frekari upplýsingar hafa enn ekki verið birtar.