Fara í efni
Fréttir

Skiptimarkaður með íþróttaföt og fleira

Allt sem tengist íþróttaiðkun eða frístundastarfssemi barna er velkomið á skiptimarkað Amtsbókasafnsins. Mynd: Unsplash/@saif71
Amtsbókasafnið á Akureyri ætlar að halda áfram með mánaðarlega skiptimarkaði í vetur. Í september verður hann helgaður frístundaiðkun og íþróttum barna og verður haldinn í næstu viku, hefst á mánudaginn og lýkur sunnudaginn 22. september. 
 
Markaðurinn verður á borðunum inni í kaffiteríu bókasafnins og er fólki frjálst að koma með eitthvað á markaðinn án þess að taka neitt í staðinn og öfugt.  Óskað er eftir hvers konar fatnaði eða búnaði sem börn nota í frístundar- eða íþróttastarf. Það sem ekki gengur út á markaðinum verður gefið á Rauða krossinn. 
 
Dæmi um hluti sem hægt er að koma með:
 
  • Sundgleraugu
  • Fimleikaföt
  • Fatnaður eða annað merkt félögunum
  • Fótboltaskór
  • Innanhússkór
  • Stuttbuxur
  • Sundföt
  • Skautar
  • Ullarföt undir skíðaföt
  • Skíðastafir
  • Dansfatnaður