Fara í efni
Fréttir

Sjöfn veitti KAON 700 þúsund króna styrk

Frá vinstri: Einar Hjartarson Sjöfn, Maron Björnsson KAON, Pétur Þór Jónasson KAON og Egill Áskelsson Sjöfn.

Oddfellowstúkan Sjöfn á Akureyri veitti Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis (KAON) 700 þúsund króna styrk í tilefni 70 ára afmælis félagsins fyrr á árinu.

Styrkurinn var afhentur í Regluheimilinu við Sjafnarstíg og sagði Einar Hjartarson formaður líknarsjóðsnefndar Sjafnar að Regludeildin hefði á undanförnum árum styrkt félagið með myndarlegum hætti, enda starfsemin afar mikilvæg. Pétur Þór Jónasson stjórnarmaður í KAON þakkaði Sjöfn fyrir myndarlegan styrk og sagði hann koma að góðum notum.