Fréttir
Sjö sóttu um embætti forstjóra SAk
15.07.2021 kl. 19:53
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.
Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytisins um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Meðal umsækjenda eru Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Jón Magnús Kristjánsson, sem nýverið sagði upp starfi yfirlæknis bráðadeildar Landspítalans.
Umsækjendur eru eftirfarandi, í stafrófsröð:
- Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur
- Guðmundur Magnússon, framkvæmdarstjóri
- Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Jón Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri
- Kristinn v Blöndal, ráðgjafi
- Linda Rut Benediktsdóttir, sviðsstjóri
- Suren Kanayan, læknir
Þriggja manna hæfnisnefnd mun nú meta hæfni umsækjanda, segir í tilkyningu ráðuneytisins. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til 5 ára frá 1. september 2021.