Fréttir
Sjálfstæðismenn kynna kosningaáherslur
22.04.2022 kl. 16:53
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri opnaði kosningaskrifstofu sína í gær, sumardaginn fyrsta, og kynnti helstu stefnumál sín fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 14. maí n.k. Skrifstofan er í Sjallanum.
Helstu kosningaáherslur Sjálfstæðisflokksins eru þessar, að því er segir í tilkynningu:
- Traust fjármálastjórnun verði í öndvegi og áhersla lögð á að lækka álögur á bæjarbúa.
- Gjaldfrjáls vistun í leikskóla fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri.
- Akureyrarbær verði áfram leiðandi í umhverfismálum. Skapaður verði vettvangur fyrir einkaaðila, fyrirtæki og stofnanir til að kolefnisjafna starfsemi sína.
- Akureyrarbær losi um fjármagn sem bundið er í fasteignum.
- Framboð íbúða- og atvinnulóða verði tryggt í sveitarfélaginu og efnt verði til hugmyndasamkeppni um uppbyggingu á Akureyrarvelli.
- Stoðþjónusta í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar verði efld með aukinni viðveru sérfræðinga í skólunum.
- Áfram verði tryggð góð þjónusta við fatlað fólk og eldri borgara. Akureyrarbær verði leiðandi í lausnum á sviði velferðartækni.
- Stafræn þjónusta við íbúa og fyrirtæki verði aukin til muna.
- Akureyrarbær verði áfram heilsueflandi samfélag þar sem sérstök áhersla verði lögð á lýðheilsu eldri borgara.
- Frístundastyrkur hækkaður í 50.000 kr. og frístundastrætó verði komið á.
- Áfram verði hlúð að starfsemi íþróttafélaga í sveitarfélaginu og leitað leiða til að mæta þörfum þeirra til frekari uppbyggingar.
- Kynja- og jafnréttissjónarmið verði höfð að leiðarljósi í allri starfsemi Akureyrarbæjar.
- Ráðist verði í átak til þess að fjölga íbúum og atvinnutækifærum í sveitarfélaginu.
- Menningarlíf verði áfram atvinnuskapandi og fjölbreytt öllum bæjarbúum til ánægju og fróðleiks.
Akureyri.net mun að sjálfsögðu birta kosningastefnu allra framboðanna á Akureyri þegar þær verða kynntar.