Fara í efni
Fréttir

Sjálfstæðismenn hafa birt framboðslistann

Þrjú efstu á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Frá vinstri: Njáll Trausti Friðbertsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir og Jens Garðar Helgason.

Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi var samþykkt á fundi kjördæmisráðs í Skjólbrekku í Mývatnssveit í dag.

Jens Garðar Helgason er nýr oddviti flokksins í kjördæminu eins og Akureyri.net greindi frá fyrr í dag. Hann sigraði Njál Trausta Friðbertsson, oddvita flokksins í kjördæminu, alþingismann og formann fjárlaganefndar, en Njáll Trausti varð svo hlutskarpastur þegar kosið var í 2. sæti listans.

Framboðslistinn í heild sinni:

1. Jens Garðar Helgason, Fjarðabyggð

2. Njáll Trausti Friðbertsson, Akureyri

3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, Múlaþingi

4. Jón Þór Kristjánsson, Akureyri

5. Telma Ósk Þórhallsdóttir, Akureyri

6. Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, Dalvíkurbyggð

7. Þorsteinn Kristjánsson, Akureyri

8. Hafrún Olgeirsdóttir, Norðurþing

9. Barbara Izabela Kubielas, Fjarðabyggð

10. Baldur Helgi Benjamínsson, Eyjafjarðarsveit

11. Jóna Jónsdóttir, Akureyri

12. Einar Freyr Guðmundsson, Múlaþingi

13. Auður Olga Arnarsdóttir, Dalvíkurbyggð

14. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir, Fjallabyggð

15. Vilmundur Aðalsteinn Árnason, Akureyri

16. Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Fjarðabyggð

17. Freydís Anna Ingvarsdóttir, Þingeyjarsveit

18. Tómas Atli Einarsson, Fjallabyggð

19. Kristinn Frímann Árnason, Hrísey

20. Helgi Ólafsson, Norðurþingi