Fréttir
Sigmundur efstur og Anna Kolbrún í 2. sæti
Framboðlisti Miðflokksins í Norðausturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi fyrr í kvöld. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður flokksins, er í efsta sætinu eins og síðast og Anna Kolbrún Árnadóttir, alþingismaður, skipar annað sæti listans, eins og fyrir fjórum árum.
Þessi skipa sex efstu sætin á lista flokksins í Alþingiskosningunum í september:
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
- Anna Kolbrún Árnadóttir
- Þorgrímur Sigmundsson
- Ágústa Ágústsdóttir
- Alma Sigurbjörnsdóttir
- Guðný Harðardóttir