Seldu Nike myndir og færðu UNICEF 200.000
Tveit strákar í 4. bekk Brekkuskóla, Helgi Hrafn Magnússon og Kjartan Gestur Guðmundsson, tóku sig til eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu og buðu teikningar til sölu. Þeir seldu fyrir 26 þúsund krónur og lögðu þá fjárhæð til neyðarsöfnunar UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu.
Eftir að forráðamenn Nike umboðsins á Íslandi fréttu af þessu hljóp heldur betur á snærið hjá strákunum.
„Það vakti athygli Nike á Íslandi að megnið af myndum þeirra voru af Nike skóm en sjálfir segjast þeir hafa einstakt dálæti á Nike. Þeir hafa til að mynda skreytt nokkur skópör duglega en fengu svo þá hugmynd að það gæti líka verið sniðugt og aðeins ódýrara áhugamál að teikna og hanna sína eigin skó á blaði. Eins komu þeir með þá hugmynd að snúa þróuninni bara við og að Nike gæti þá heldur framleitt skóna þeirra,“ segir í frétt á H Magasín, vef H verslunar sem er í eigu Icepharma, umboðsfyrirtækis Nike.
Allur ágóðinn til UNICEF
„Nike sem leggur samfélagslegum málum jafnan lið fannst meira en kjörið að styðja bæði við þessa efnilegu listamenn sem og að leggja málefni þeirra lið með því að kaupa sitt hvort verkið af þeim. En hvor mynd fór á 100.000 krónur. Afhentu þeir Helgi Hrafn og Kjartan Gestur því UNICEF stoltir 200.000 kr. Að sögn mæðra drengjanna fögnuðu þeir með söng og dansi þegar Nike sýndi verkefninu áhuga. Sögðu þeir einnig að tíðindin hefðu gert það að verkum að eftirspurn eftir myndunum hefði aukist mikið,“ segir á síðunni.
„Nike á Íslandi færði vinunum nýja Nike skó á sama tíma og þeir tóku við framlögunum. Það er gaman að segja frá því að þeir fóru beint heim og skreyttu skóna og skelltu sér á skólaball. Við hlökkum til að sjá afraksturinn.“
Á síðunni færa UNICEF á Íslandi og Nike „þessum góðhjörtuðu ungu drengjum hjartans þakkir fyrir stuðninginn sem mun nýtast vel í umfangsmiklum verkefnum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úkraínu og við landamæri nágrannaríkja.“
Hlutverk UNICEF
UNICEF er á vettvangi að tryggja meðal annars hreint vatn, heilbrigðisþjónustu, skólagögn, félagslega sálfræðiþjónustu og fjárhagsaðstoð. Einnig hefur verið virkjað svokallað Bláu punktakerfið til að taka á móti fólki sem nú flýr Úkraínu. Blái punkturinn er eins konar miðstöð þar sem tekið er á móti börnum og fólki á flótta, barnvæn svæði þar sem börn og fjölskyldur fá sálræna aðstoð, heilbrigðisþjónustu, hjálpargögn, upplýsingar, skjól og vernd. Þá hafa Bláu punktarnir reynst mikilvægir til að bera kennsl á fylgdarlaus börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar. Einnig komu um helgina sex fullestaðir flutningabílar frá UNICEF til Lviv í vesturhluta Úkraínu með alls 62 tonn af hjálpargögnum.
Leiðir fyrir fólk að styðja við söfnunina eru t.d:
Inná UNICEF heimasíðunni : https://unicef.is/ukraina
Senda SMS-ið UNICEF í númerið 1900 til að styrkja um 1.900 kr.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102060 kt. 481203-2950.
Þá er sömuleiðis tekið við AUR greiðslum í númerið 123-789-6262 eða með því að skrifa @unicef.