Fara í efni
Fréttir

Sambíóin: Var aldrei á stefnuskránni að loka

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Engar breytingar eru fyrirhugaðar í Sambíóunum á Akureyri. Sú saga gekk fjöllunum hærra fyrir nokkrum mánuðum, og rataði raunar í fréttir, að til stæði að selja bíóið en loka því ella, en Björn Árnason, framkvæmda- og fjármálastjóri Sambíóanna segir það misskilning.

„Við erum ekki að fara að loka bíóinu og það var reyndar aldrei á stefnuskránni,“ segir Björn við Akureyri.net. Á síðasta ári spurðist út að eigendur Sambíóanna vildu selja húsnæðið við Ráðhústorg og vonuðust til þess að einhverjir hefðu áhuga á að reka bíó í hinu gamalkunna húsi Nýja bíós. „Ég var spurður að því af fréttamanni hvað myndi gerast af húsið seldist ekki og ég svaraði að við myndum taka á því þegar þar að kæmi. Ég veit ekki hvernig hægt var að túlka það svar þannig að það ætti að loka bíóinu.“

Húsið er vissulega enn til sölu, segir Björn. Fjölskyldufyrirtækið SAMfélagið keypti rekstur Nýja bíós árið 2000 og hefur því rekið Sambíó á Akureyri í aldarfjórðung. „Enginn okkar er að yngjast og okkur finnst tímabært að einbeita okkur eingöngu að rekstrinum fyrir sunnan.“

Björn segir bíóið á Akureyri hafa verið rekið með hagnaði undanfarin ár, eftir Covid. „Aðsókn hefur verið ágæt en auðvitað væri betra ef hún væri meiri til að halda í við endurnýjun á tækjum og nýjungum í rekstrinum enn betur. Fólk veit skiljanlega ekki hvernig þessi bransi virkar; við höfum verið spurð af hverju ekki séu sýndar fleiri eldri klassískar myndir eins og fyrir sunnan, en þar þarf oft að greiða ákveðna upphæð fyrir hverja sýningu, sama hvort einn áhorfandi kemur eða 100 og þess vegna eru þær myndir aðeins áhættusamari,“ segir Björn. „Önnur lögmál gilda um hinar hefðbundnu Hollywood myndir, þær verða allar sýndar í þessu bíói eins og áður,“ segir hann.

„Ég er með frábært starfsfólk hér en fjarstýri rekstrinum engu að síður að sunnan og er viss um að eigendur á svæðinu ættu auðveldara með að ná betri tengslum við hina ýmsu samfélagshópa á svæðinu sem gerði það að verkum að aðsókn yrði enn meiri en hún er í dag. Ég held það væri kjörið ef til dæmis vinahópur myndi reka bíóið, eða fjölskylda – þannig byrjuðum við í Keflavík,“ segir Björn Árnason.