SAk heimilt að láta hanna nýja legudeild
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hefur fengið formlega heimild til hönnunar á nýrri legudeild. Þetta kemur fram í frétt RÚV. Áform um bygginguna voru fyrst rædd árið 2015, en markmiðið er að hún verði risin í lok árs 2027.
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk, fagnar þessum áfanga í samtali við RÚV; loks sé búið að heimila að ráðast í áætlanagerð sem lengi hafi legið fyrir. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2023-2027 er gert ráð fyrir 7,3 milljörðum í verkefnið og stefnt á að byggingin verði tilbúin árið 2027.
„Á deildinni er gert ráð fyrir um 84 legurýmum, fyrir skurðlækninga-, lyflækninga- og geðdeildir. Auk nýbyggingarinnar stendur til að endurnýja ýmislegt í eldri byggingum, sem skili sér í bættri dag- og göngudeildarþjónustu,“ segir á vef RÚV.
Smellið hér til að sjá frétt RÚV