Fara í efni
Fréttir

Rúta valt í Öxnadal – margir slasaðir

Frá slysstað í dag
Margir slösuðust þegar rúta valt út af veginum í Öxnadal um fimmleytið í dag. Í rútunni voru 22 auk ökumanns, aðallega erlendir ferðamenn skv. frétt á vef RÚV.
 
Nokkrir sjúkrabílar er á leið af slysstað í forgangsakstri og byrjað að rýma veginn svo þyrla Landhelgisgæslunnar geti lent.
 
Vegurinn um Öxnadal er lokaður og mun verða eitthvað áfram. Vegagerðin bendir á hjáleið um Tröllaskaga.