Fréttir
Reisum fallegasta húsið við Norðurgötu
31.03.2023 kl. 13:45
„Ég er þeirrar skoðunar að Oddeyrin ætti að vera mesta „borgarhverfið“ á Akureyri. Hverfið þar sem auðveldast væri að eiga heima án þess að eiga bíl, þéttasta hverfið og það fallegasta með fallegustu húsunum. Eftirsóttasta hverfið fyrir þá sem vilja ganga eða nota hjól í stað bíls,“ segir Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri, í grein sem birtist á Akureyri.net í dag þar sem hann fjallar um hugmyndir að uppbyggingu syðst í Norðurgötu.
Þrjár hugmyndir verktaka sem bærinn hyggst semja við voru birtar á Akureyri.net á dögunum. Jóni Þorvaldi finnst hugmyndin á myndinni sú besta og rökstyður hvers vegna.
Smellið hér til að lesa grein Jóns Þorvaldar
Smellið hér til að sjá umfjöllun Akureyri.net 16. mars um hugmyndirnar þrjár