Fara í efni
Fréttir

Rautt og rólegt í Oddeyrargötunni

Myndir af vef Akureyrarbæjar

Gatnamót Oddeyrargötu og Brekkugötu verða rauð frá og með deginum í gær. Endingagóðri rauðri málningu er hellt yfir malbikið og ofan í hana borið rautt kurl sem gerir fletina áferðarfegurri, eins og segir á vef Akureyrarbæjar.

Gatnamótin hafa verið lokuð af og til síðustu vikurnar vegna vinnu við hellulagnir og gangbrautir, málningarvinnu á að ljúka í dag og þá er vonast til að hægt að hleypa umferð á gatnamótin til frambúðar.

En hvers vegna rauði liturinn? Á veg sveitarfélagsins segir:

Rauður litur á gatnamótunum er til marks um að við taki hverfi þar sem vélknúin ökutæki njóta ekki forgangs umfram aðra ferðamáta og er þar um svokallað shared space að ræða en slík afmörkun rólegri hverfa tíðkast víða erlendis og má til að mynda lesa um slíkt HÉR.

Smellið hér til að sjá fleiri myndir