Rausnarlegar gjafir frá Hjartavernd
Hjartavernd Norðurlands færði heilsugæslustöðinni á Akureyri í morgun að gjöf fullkomið hjartalínuritsæki og blóðþrýstingsmæli. Verðmæti gjafanna er rúmlega tvær milljónir króna.
Á vef HSN segir í morgun: „Fulltrúar Hjartaverndar Norðurlands komu í heimsókn á heilsugæslustöðina á Akureyri fimmtudaginn 3. mars en tilgangur heimsóknarinnar var formleg afhending gjafa. Hjartavernd Norðurlands færði heilsugæslunni að gjöf hjartalínuritstæki af fullkomnustu gerð frá Philips TC50 á hjólastandi að verðmæti 1.931.422 kr. og blóðþrýstingsmæli frá Welch Allyn á hjólastandi að vermæti 154.900 kr.“
Þar segir einnig: „Gjafir sem þessar styðja við mikilvægt starf heilsugæslunnar og er HSN afar þakklát Hjartavernd Norðurlands sem hefur verið dyggur stuðningsaðili til margra ára.“