Fara í efni
Fréttir

Rauði krossinn fékk 300 þúsund frá LC7

Fulltrúar úr stjórn LC7 ásamt Ingibjörgu Halldórsdóttur. Frá vinstri: Hildur Þóra Magnúsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir, Hrönn Björgvinsdóttir og Elísabet Þórunn Jónsdóttir.

Ladies Circle 7 hélt á dögunum góðgerðarviðburðinn List, lyst og list þar sem safnað var fyrir verkefni Eyjafjarðardeildar Rauða krossins, Stuðningur við flóttafólk.

Viðburðurinn fól meðal annars í sér þögult uppboð, tónlist, andlitsmálun, listasmiðju og veitingar. Axelsbakarí og Bakaríið við brúna studdu við verkefnið með því að gefa veitingar á hlaðborð.

„Viðburðurinn heppnaðist með eindæmum vel, nær öll uppboðsverk seldust auk þess sem tekið var á móti frjálsum framlögum. Alls söfnuðust 300.000 krónur sem stjórn LC7 afhenti Ingibjörgu Halldórsdóttur, deildarstjóra Eyjafjarðardeildar Rauða krossins,“ segir í tilkynningu frá LC7.

Ladies Circle eru alþjóðleg góðgerðarsamtök kvenna á aldrinum 18-45 ára þar sem vináttan er í forgrunni. Á Íslandi eru starfræktir 17 LC klúbbar en nánari upplýsingar um starfsemi þeirra má finna á https://ladiescircle.is/

List, lyst og list til stuðnings flóttafólki

LC7 konur að loknum góðgerðaviðburðinum List, lyst og list.