Rannsóknarhola boruð við Síðuskóla!
Unnið er við að bora rannsóknarholur hér og þar í Eyjafirði á vegum Norðurorku þessa dagana. Í vikunni var meðal annars borað við Síðuskóla á Akureyri! Myndirnar eru teknar þar og birtust á vef Norðurorku.
„Rannsóknir eru veigamikill þáttur í starfsemi Norðurorku en þær byggja annars vegar á því að fylgjast vel með þeim auðlindum sem verið er að nýta hverju sinni, svokallað vinnslueftirlit, en hins vegar á að huga að mögulegum framtíðarvinnslusvæðum,“ segir á vef fyrirtækisins.
„Heitavatnsnotkun á Akureyri hefur vaxið hratt undanfarin ár. Mikið hefur verið byggt á Akureyri og nágrenni en þegar horft er til aukningar í íbúafjölda virðist sem hver einstaklingur sé að nota aukið magn hitaveituvatns. Meðal annars þess vegna hefur þörf á rannsóknum, til öflunar á heitu vatni, aukist enn frekar.“
Á vef Norðurrku að „hitastigulsboranir“ sem þessar séu notaðar til að leita að jarðhita „þar sem engin yfirborðsummerki eru. Bora þarf um 60 metra í berg þannig að hver hola er að jafnaði 60-100m djúp, allt eftir því hversu djúpt er niður á bergið. Á vegum Norðurorku verða boraðar um 30 hitastigulsholur víða í firðinum, á stöðum sem ekki hefur verið borað á áður.“