Ragnheiður ráðin yfirþjálfari Óðins

Ragnheiður Runólfsdóttir hefur verið ráðin yfirþjálfari hjá sundfélaginu Óðni á Akureyri á nýjan leik. „Ragga býr yfir mikilli reynslu af þjálfun en hún hefur starfað við sundþjálfun frá árinu 1992 og lengst af sem yfirþjálfari,“ segir í tilkynningu á heimasíðu sundfélagsins í dag. Ragnheiður kemur til starfa í sumar.
„Ragga er félaginu að góðu kunn þar sem hún sinnti þjálfun hjá Óðni á árunum 1996–1998 og svo aftur á árunum 2011–2019. Að undanförnu hefur hún starfað sem yfirþjálfari í Svíþjóð hjá Simklubben S02 í Gautaborg og hjá KBSS í Kungsbacka,“ segir á vef Óðins. „Við í Sundfélaginu Óðni bjóðum Röggu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til að vinna með henni að því að efla starfið enn frekar. “
Ragnheiður er ein allra besta sundkona Íslands. Hún var kjörin var Íþróttamaður ársins 1991 af Samtökum íþróttafréttamanna og varð þar með önnur konan til að hreppa þá eftirsóttu nafnbót. Ragnheiður keppti á tvennum Ólympíuleikum á sínum tíma, í Seoul í Suður-Kóreu 1988 og í Barcelona á Spáni 1992.