Rafrænt málþing um sálræn áföll og ofbeldi
Alþjóðlegi mannréttindadagurinn, 10. desember, er runninn upp og af því tilefni fer fram rafrænt málþing í Háskólanum á Akureyri sem tengist áföllum í víðum skilningi. Erindin eru lokaafurð stúdenta í námskeiðinu Sálræn áföll og ofbeldi.
„Málþingið er fyrir alla sem hafa áhuga á málefninu. Áföll tengjast öllum, við verðum öll fyrir áföllum á lífsleiðinni og það er mikilvægt að við áttum okkur á hvaða afleiðingar það getur haft og hvað við getum gert til að vinna með það,“ segir Sigrún Sigurðardóttir dósent og umsjónarkennari námskeiðsins.
Á málþinginu munu stúdentar og kennarar kynna nýjustu rannsóknir og deila reynslu sinni.
„Öll erindin brenna á samfélaginu okkar í dag. Má þar nefna sjálfsvíg, fíknivanda, heilsufar og líðan eftir áföll. Það kemur skýrt fram hversu mikilvægt er að leita sér hjálpar og vinna með áföllin og það eru svo margar leiðir til. Áfallamiðuð nálgun er að ryðja sér til rúms hér á landi og mikilvægt að horfa á það. Einnig erum við að átta okkur á því að við getum verið að glíma við áföll sem við höfum fengið frá fyrri kynslóðum. Við verðum að fara að efla forvarnir til að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar áfalla,“ segir Sigrún.
Dagskrá
- 10:00 Opnun og kynning - Dr. Sigrún Sigurðardóttir umsjónarkennari námskeiðsins
- 10:10 Að missa barn í sjálfsvígi. Reynsla foreldra - Guðfinna Hallgrímsdóttir og dr. Sigurður Kristinsson
- 10:30 Að leita sér hjálpar eftir kynbundið ofbeldi - Dr. Karen Birna Þorvaldsdóttir
- 10:45 Kynslóða áföll: Þegar vitlaust er gefið - Kristjana Atladóttir
- 11:00 Tilfinningalegt ofbeldi meðal barna og unglinga. Forvarnir, fræðsla og námsefni. Berglind Guðjónsdóttir og Þórunn Kristín Bjarnadóttir
- 11:15 Að fara í samband aftur eftir andlegt ofbeldi í nánum samböndum - Helena Vignisdóttir
- 11:30 Áhrif áfalla í æsku á líðan kvenna á meðgöngu - Gréta Rún Árnadóttir
- 11:45 Sálræn áföll, ACE og Endometriosis (legslímuflakk) - Guðrún Björk Þorsteinsdóttir
- 12:00 Áhrif áfalla á æsku á fullorðinsár - Eydís Unnur Thorshamar
- 12:15 Sálræn áföll kvenna og konur með ópíóðafíkn - Ása Huldrún Magnúsdóttir
- 12:30 Secundary Traumatic Stress meðal framlínustarfsmanna í COVID-19 - Viktoría Björk Erlendsdóttir
- 12:45 Að kjarnanaum. Samkenndarþreyta og samkenndarsátt - Ásgerður Kristín Gylfadóttir
- 13:00 Áfallamiðuð nálgun fyrir fólk með fíknivanda - Diljá Ámundadóttir Zoega
- 13:15 Áfallamiðuð nálgun í skólakerfinu - Karen Nóadóttir
- 13:30 Samþættar meðferðir. Gæfusporin - Sigrún Sigurðardóttir
- 13:45 Frjálsir vængir - Jokka
- 14:00 Samtalið. Fræðsla ekki hræðsla - Arnrún María Magnúsdóttir
- 14:15 Hugvíkkandi efni og krabbamein - Auður Elísabet Jóhannsdóttir
- 14:30 Hugvíkkandi sveppir og geðræn vandamál - Thelma Lind Guðmundsdóttir
- 14:45 Áfallamiðuð kennslufræði og sjálfbærnimenntun - hvernig kallast þær á? Guðný Jórunn Gunnarsdóttir
- 15:00 Málþingslok