Rafmagnstruflanir víða á Norður- og Austurlandi
RARIK hefur sent út tilkynningu vegna truflana og rafmagnsleysis í flutningskerfi Landsnets sem hafði áhrif mjög víða um norðan- og austanvert landið, og þar á meðal á Akureyri. Vart varð við rafmagnstruflanir um kl. 12:25, ljós blikkuðu og á hluta af áhrifasvæði bilunarinnar eyðilögðust mælar og heimilistæki í einhverju tilvikum, að því er fram kemur í tilkynningunni. RARIK segir mikla spurn eftir þjónustu símkerfis fyrirtækisins vegna þessa atviks og biður viðskiptavini um að sýna þolinmæði meðan unnið er að því að koma rafmagninu á aftur.
Tilkynning RARIK er eftirfarandi
Um klukkan 12:25 varð truflun á flutningskerfi Landsnets vegna útleysingar hjá Norðuráli. Áhrifa af þessu gætti víða og rafmagnslaust varð frá Glerárskógum á Vesturlandi, á Norðurlandi og austur á firði. Landsnet og RARIK vinna að greiningu á trufluninni og því að byggja kerfið upp aftur og þegar hefur rafmagni verið komið á í Dalabyggð, Hrútatungu, Blöndósi og Skagaströnd. Kort af áhrifasvæði bilunarinnar er meðfylgjandi. Ekki varð rafmagnslaust á öllu svæðinu sem meðfylgjandi kort sýnir heldur gætti þar áhrifa frá höggi í flutningskerfinu og t.d. eyðilögðust mælar og heimilistæki í einhverjum tilfellum. Verst urðu áhrifin á svæðinu frá Búðardal og austur að Vopnafirði. Stjórnstöð RARIK vinnur sem stendur að því að byggja flutningskerfið upp aftur og koma á rafmagni þar sem það fór af.
Mikil eftirspurn er eftir þjónustu símkerfis RARIK vegna þessa atviks og eru viðskiptavinir beðnir um að sýna þolinmæði meðan unnið er að því að koma rafmagninu á aftur.
Þegar búast má við rafmagnstruflunum er ráðlegt að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem slökkva ekki á sér sjálf þegar rafmagni slær út og sem geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Þetta á meðal annars við um eldavélar og fleiri hitunartæki en einnig er ráðlegt að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp. Þá hefur reynst mörgum vel að eiga vasaljós að grípa til því farsímaljós eru fljót að tæma farsímarafhlöður. RARIK minnir einnig á að rafmagnsleysi getur haft áhrif á fjarskipti og ýmsa þjónustu sem er háð rafmagni.
Fylgjast má með frekari tilkynningum á rarik.is/rof og rarik.is/tilkynningar og á Facebook-síðu RARIK sem verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast.