Fara í efni
Fréttir

Rafmagnslaust í hluta Glerárhverfis

Rafmagn fór af hluta Glerárhverfis fyrir stundu. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvers vegna það gerðist en starfsmenn Norðurorku leita bilunarinnar.

Uppfært - Klukkan 10.59 birtist eftirfarandi á vef Norðurorku:

Grafið var í streng sem varð til þess að rafmagnið fór af töluverðu svæði í Þorpinu. Viðgerð er hafin og vonast er til að rafmagnið komi aftur á eftir um það bil 30 mínútur. Við munum áfram uppfæra fréttina ef frekari upplýsingar berast.