Fara í efni
Fréttir

Póstþjónusta breytist á Norðurlandi

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins.

Á næstu mánuðum hyggst Pósturinn gera breytingar á póstþjónustu á Norðurlandi, nánar tiltekið í Grenivík, á Laugum og í Reykjahlíð. Pósturinn hefur sagt upp samningi við samstarfsaðila á þessum stöðum og þar af leiðandi verður póstafgreiðslu hjá samstarfsaðilum lokað en þess í stað verður lögð áhersla á að veita póstþjónustu með öðrum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, segir að lögð sé áhersla á að þróa þjónustuna í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. „Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox auk þess sem í dag er hægt að póstleggja pakka í póstbox. Flest póstboxin eru aðgengileg allan sólarhringinn og eru einföld í notkun,“ segir Þórhildur í tilkynningunni.

Óhjákvæmilegar breytingar

Hún segir stafræna umbreytingu kalla á nýjar nálganir í þjónustu og við því verði að bregðast við því. Um leið beri fyrirtækinu beinlínis skylda til að leita hagkvæmra leiða í rekstrinum og því séu breytingar sem þessar óhjákvæmilegar. „Pósturinn hefur lagt höfuðáherslu á að endurskipuleggja þjónustu fyrirtækisins með viðskiptavini í forgrunni. Hluti af þeirri vegferð eru fleiri sjálfvirkar afhendingarleiðir í aukinni nálægð við viðskiptavini. Markmið okkar er ávallt að fjölga afhendingarstöðum en það er okkur mikið kappsmál að bæta við póstboxum í helstu þéttbýliskjarna á landsbyggðinni. Það skiptir máli að bjóða upp á þétt dreifinet móttöku og afhendingastaða til að vera sem næst viðskiptavinum okkar,“ segir Þórhildur.

Pósturinn ekki að fara neitt

Pósturinn býður upp á fjölbreyttar þjónustuleiðir í takt við nýjar áherslur, segir í tilkynningunni. „Við erum óendanlega þakklát fyrir það góða starf sem hefur verið innt af hendi á þessum samstarfspósthúsum og þrátt fyrir þessar breytingar er Pósturinn ekki að fara neitt. Við ætlum okkur að sjálfsögðu að halda áfram að veita góða þjónustu. Þessir staðir eru með alhliða þjónustu allt frá tvisvar í viku og upp í fimm sinnum í viku. Við munum skoða að setja póstbox á þessa staði með það að leiðarljósi að sinna allri dreifingu sendinga bréfa og pakka með póstboxum í viðkomandi þéttbýliskjörnum. Þeir sem það kjósa geta sem fyrr óskað eftir heimsendingu, póstbílinn verður á ferðinni og viðskiptavinir geta haft samband við bílstjórann í gegnum síma. Okkar besta fólk er klárt á útkeyrsluvaktinni til að afhenda pakka heim að dyrum allt að 5 daga vikunnar. Fyrir þá sem eru á ferðinni, og vilja nýta sér aðra afgreiðslustaði má sjá þá á vef Póstsins,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.

„Á posturinn.is má finna ítarefni og upplýsingar um fjölbreytta þjónustu Póstsins. Auk þess er alltaf velkomið að hafa samband við þjónustuver í síma 580 1000 eða spjallköttinn Njál á posturinn.is. Á næstu vikum munu íbúar á svæðinu fá nánari upplýsingar um hvernig þjónustunni verður hagað í framhaldinu.“