Óvissustigi lýst yfir vegna veðurútlits
Uppfærð frétt.
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á Norðurlandi eystra, sem og á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum eftir samráð ríkislögreglustjóra við lögreglustjórana á þessum svæðum. Spáð er norðanátt sem gæti fylgt slydda og snjókoma.
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 18 í dag. Á vef Vegagerðarinnar segir að ekki sé útlit fyrir að neitt ferðaveður verði á norðan- og norðaustanverðu landinu, né á miðhálendinu og er ekki mælt með ferðalögum á þeim slóðum þar til hægir á ný.
Í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir meðal annars að ljóst sé að snjó muni festa á fjallvegum í nótt en Vegagerðin muni strax í fyrramálið hefja hreinsun. Lögreglan hvetur fólk til að fylgjast vel með á síðum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar hvernig mál þróast áfram og haga ferðaplönum sínum í takt við þær upplýsingar.
Sjá nánar á vef Veðurstofunnar.