Fara í efni
Fréttir

Örvunarskammtar við Covid-19 í boði

Bólusetning á slökkvistöðinni á Akureyri. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Bólusetningarátak vegna Covid-19 hefst í dag, fimmtudag, á slökkvistöðinni á Akureyri. Bólusett verður fjóra fimmtudaga á næstunni - klukkan 13.00 til 15.00 í öll skiptin.

  • 18. nóvember
  • 25. nóvember
  • 9. desember
  • 16. desember

Á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) kemur fram að send verði út boð í örvunarskammta. Þar segir ennfremur að þeim, sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki getað nýtt sér fyrri boð, sé velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri. Ekki sé þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn. Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í fylgd forráðamanna.

Á vef HSN segir jafnframt:

  • Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar sex mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Bólusettum yngri en 70 ára býðst örvunarskammtur þegar 6 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu.
  • Bólusettir 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
  • Bólusett verður með bóluefni frá Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
  • Munið að 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.
  • Þau sem eru búin með grunnbólusetningu og hafa fengið Covid eiga að bíða þangað til frekari fyrirmæli berast.

Sóttvarnalæknir mælir með þriðja skammti

Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir