Fara í efni
Fréttir

Öruggara Norðurland eystra formfest

Lögreglan á Norðurlandi eystra og öll sveitarfélögin í umdæminu hafa formfest svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á svæðinu undir merkjum Öruggara Norðurland eystra.

Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar að framkvæmdateymi muni starfa á vegum verkefnisins þar sem settir verða af stað vinnuhópar um ýmislegt það sem lýtur að forvörnum í samfélaginu. Þar koma að fulltrúar samstarfsaðilanna í verkefninu auk þeirra sem þörf er á hverju sinni. Lögreglan tekur jafnframt fram að fólk sem hafi áhuga á frekara forvarnasamstarfi megi hafa samband við embættið. 

„Embættið fagnar auknu samstarfi í málaflokknum og þakkar þann mikla áhuga sem samstarfsaðilarnir sýna verkefninu,“ segir meðal annars í tilkynningu lögregluembættisins. 

Fulltrúar lögreglunnar og samstarfsaðila hennar komu saman og settu verkefnið formlega af stað í gær. Mynd: Lögreglan á Norðurlandi eystra.

Samstarfsaðilar lögreglunnar eru öll sveitarfélög á svæðinu ásamt Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Háskólanum á Akureyri, Framhaldsskólanum á Húsavík, Framhaldsskólanum á Laugum, Menntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Tröllaskaga, Verkmenntaskólanum á Akureyri og Bjarmahlíð þolendamiðstöð. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit.