Fara í efni
Fréttir

Opna veitingastað með ítölsku ívafi í Hofi

Eva Hrund Einarsdóttir, lengst til vinstri, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, og veitingafólkið Guðbjörg Einarsdóttir og Einar Hannesson, og Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri Hofs. Mynd: Unnur Anna

Veitingafólkið Einar Hannesson og Guðbjörg Einarsdóttir, eigendur Eyju - vínstofu og bistró í hjarta Akureyrar, opna nýjan veitingastað í Menningarhúsinu Hofi fljótlega á nýju ári. Greint er frá samningi þeirra og Menningarfélags Akureyrar (MAk) þar að lútandi í tilkynningu frá félaginu.

MAk semur við félagið H90 sem eru í eigu Einars og Guðbjargar. „Með þeim stendur öflugt og reynsluríkt teymi sem mun setja punktinn yfir i-ið í upplifun gesta sem koma í Hof,“ segir í tilkynningunni.

Mjög spennandi

„Við erum ofsalega spennt. Húsið og allt hér inni er svo ótrúlega fallegt og það að geta boðið upp á veitingar og þjónustu sem hæfir Hofi er spennandi,“ er haft eftir Einari og Guðbjörgu í tilkynningu frá MAk.

Veitingastaðurinn í Hofi verður með ítölsku ívafi en nafn hans verður tilkynnt síðar. H90 tekur við keflinu í byrjun desember og sinnir því veitingasölu á viðburðum í jólamánuðinum en opnar svo með pompi og prakt fljótlega á nýju ári.

Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, segir afar verðmætt að fá aftur veitingaaðila í Hof. „Ég fagna því að samningar hafi náðst við þennan flotta og reynsluríka rekstraraðila. Það verður notalegt að gestir geti á ný sest niður og notið veitinga í þessu fallega húsi okkar.“