Fréttir
Opna brekkurnar viku síðar en ráðgert var
13.12.2023 kl. 16:00
Mynd af vef Akureyrarbæjar
Til stóð að opna skíðabrekkurnar í Hlíðarfjalli á föstudaginn en því hefur nú verið frestað um viku vegna snjóleysis. Í tilkynningu segir að skíðasvæðið sé þrátt fyrir allt vel búið undir frábæran skíðavetur og ekki þurfi mikið til þess að vertíðin geti hafist með glæsilbrag.
„Síðastliðna mánuði hefur starfsfólk unnið hörðum höndum að því að undirbúa vetraropnun og stefnt var að því að opna svæðið fyrir skíðafólki föstudaginn 15. desember. Því miður hefur vetur konungur lítið látið á sér bera og þrátt fyrir kuldatíð er ljóst að töluvert meiri snjó þarf til þess að hægt sé að opna skíðasvæðið. Eftir að hafa farið vandlega yfir aðstæður og horfur næstu daga, hefur verið ákveðið að seinka opnun til föstudagsins 22. desember,“ segir í tilkynningu. „Snjóframleiðsla verður keyrð á fullu næstu daga ef aðstæður leyfa og starfsfólk Hlíðarfjalls leggst á bæn um að fá „hvíta gullið“ sem fyrst af himnum ofan.“
Forsala vetrarkorta hefur verið framlengd til 5. janúar og er nú í fullum gangi, að því er segir í tilkynningunni. Afgreiðslan verður opin fyrir sölu vetrarkorta föstudaginn 15. desember frá kl. 10-16, laugardaginn 16. desember frá kl. 10-12.30 og alla næstu viku frá kl. 16-19. „Spenntum skíðagestum er því velkomið að koma upp að Skíðastöðum og undirbúa sín kort fyrir veturinn og þar með vera tilbúið í brekkurnar um leið og opnar.“
Gönguskíðasvæðið verður áfram opið eins og aðstæður leyfa en þar hafa aðstæður undanfarið verið góðar og fjöldi fólks nýtt sér það. Fólki er bent á að fylgjast nánar með opnun gönguskíðabrauta á heimasíðu Hlíðarfjalls.
Snjóframleiðsla gengið vel
- Síðdegis í dag, miðvikudag, er fimm stiga hiti í Hlíðarfjalli og veðurspá breytileg fyrir næstu daga. Útlit er fyrir kulda aftur um helgina.
- Snjóframleiðsla hefur gengið vel síðustu vikur og hver klukkutími nýttur í frostinu til framleiðslu, segir á vef Hlíðarfjalls.
- „Snjóframleiðslan verður áfram í algjörum forgangi og hefst aftur af fullum krafti um leið og frystir nóg. Starfsfólk heldur áfram að meta aðstæður dag frá degi með það að markmiði að opna sem fyrst.“
- „Allt verður gert til þess að festa meiri snjó í fjallinu. Staðan er einfaldlega sú að snjókoma í fjallinu hefur verið óvenjulega lítil undanfarið og samkvæmt veðurfræðingum hefur úrkoma á Akureyrasvæðinu síðastliðinn mánuð aðeins verið um 40% af því sem venjulega er á þessum árstíma.“