Fara í efni
Fréttir

Opið fyrir tilnefningar vegna FKA-hátíðarinnar

Á FKA hátíðinni á síðasta ári. Frá vinstri: Tanya Zharov aðstoðarforstjóri Alvotech „FKA viðurkenningarhafi“ 2024, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja „FKA þakkarviðurkenningarhafi“ 2024 og Inga Tinna Sigurðardóttir stofnandi Dineout „FKA hvatningarviðurkenningarhafi“ 2024.

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna viðurkenningarhátíðar Félags kvenna í atvinnulífinu 2025. Hátíðin er haldin árlega og hver sem er getur tilnefnt konur í einum flokki eða öllum, til og með 21. nóvember.

  • SMELLIÐ HÉR TIL AÐ TILNEFNA

Sjö manna dómnefnd fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel í Reykjavík 29. janúar. „Dómnefnd mun meta og á endanum, velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu. Lögð er áhersla á að fá nöfn ólíkra kvenna á lista þar sem mikilvægt er að beina kastaranum að flottum fyrirmyndum og fjölbreyttum hópi kvenna af öllu landinu, með ólíkan bakgrunn og reynslu sem dómnefnd mun vinna með og á endanum velja þær konur sem verða heiðraðar,“ segir í tilkynningu frá FKA.

FKA viðurkenningin var fyrst veitt árið 1999 „og síðustu ár hefur framlína í íslensku atvinnulífi og nánir samstarfsfélagar og fjölskyldur viðurkenningarhafar fagna saman á stórglæsilegri hátíð sem beðið er eftir með mikilli eftirvæntingu.“

Á hátíðinni eru veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið hvatning og fyrirmyndir:

  • FKA viðurkenning er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem er eða hefur verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.
  • FKA hvatningarviðurkenning er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.
  • FKA þakkarviðurkenning er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

„Hvaða þrjár konur verða heiðraðar?“ er spurt í tilkynningunni. „Hafðu áhrif og sendu inn tilnefningu fyrir FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2025.“