Fréttir
Ókeypis í sund og á skíði í vetrarfríinu
21.02.2023 kl. 10:10
Ljósmynd: Auðunn Níelsson
Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna. Frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins í morgun.
Þar segir að á fimmtudag og föstudag í þessari viku geti grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar og sundlaugar Akureyrar án endurgjalds.
„Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar í VMA og MA framvísa nemendaskírteinum. Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.100 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1,“ segir á vef bæjarins.