Fara í efni
Fréttir

Ók á gangandi og yfirgaf vettvang

Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar kl. 18:15 í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið að því er fram kemur í tilkynningu sem Lögreglan á Norðurlandi eystra birti á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu. Lögreglan auglýsir eftir vitnum að slysinu og hvetur jafnframt ökumanninn til að gefa sig fram við lögreglu.

Ef lesendur hafa upplýsingar um málið skal hringja í 112 sem gefur samband við lögreglu.