Fréttir
Oddvitaþætti RÚV streymt á Akureyri.net
13.11.2024 kl. 17:00
Ríkisútvarpið verður með kjördæmafund í Norðausturkjördæmi í kvöld þar sem rætt verður við forystumenn flokkanna sem bjóða fram í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum í lok mánaðarins.
Þátturinn verður sendur út á Rás 2 og á RUV 2 en einnig verður hægt að horfa á hann í beinu streymi hér á Akureyri.net.
Þátturinn verður sendur út frá Hofi á Akureyri og hefst strax að loknum kvöldfréttum í útvarpinu, kl. 18.10. Umsjónarmenn verða Freyr Gígja Gunnarsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir.
Eftirtaldir frambjóðendur verða í þættinum:
- B - Framsóknarflokkur - Ingibjörg Ísaksen þingmaður
- D - Sjálfstæðisflokkur - Jens Garðar Helgason aðstoðarforstjóri Kaldvíkur
- C - Viðreisn - Ingvar Þóroddsson framhaldsskólakennari
- F - Flokkur fólksins Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri
- J - Sósíalistaflokkurinn - Þorsteinn Bergsson þýðandi og rithöfundur
- L - Lýðræðisflokkurinn - Gunnar Viðar Þórarinsson athafnamaður
- M - Miðflokkurinn - Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður
- P - Píratar - Theódór Ingi Ólafsson forstöðumaður
- S - Samfylkingin - Logi Einarsson þingmaður
- V - Vinstri græn - Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur