Norðanátt: 14 verkefni valin á fjárfestahátíð
Fjórtán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem fer fram á Siglufirði þann 29. mars næstkomandi. Þar fá fulltrúar sprota- og vaxtarfyrirtækja tækifæri til að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum.
Þetta er í annað sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en þrjátíu verkefni af öllu landinu sóttu um þátttöku í ár.
Öll verkefni sem taka þátt í hátíðinni tengjast með einhverjum hætti mat, orku eða vatni, en áhersla er lögð á þá þætti í kjarnastarfsemi Norðanáttar, að því er segir í tilkynningu.
Verkefnin sem munu taka þátt á hátíðinni í ár eru úr öllum landshlutum; (N) Norðurland – (S) Suðurland – (H) höfuðborgarsvæði – (VF) Vestfirðir – (V) Vesturland – (R) Reykjanes – (A) Austurland.
- Bambahús - Úr drasli í nasl (VF)
- Biopol - Ocean Gold (N)
- EONE ehf. - e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)
- Frostþurrkun ehf. - Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)
- Gefn - Nýsköpun í grænni efnafræði (H)
- GeoSilica Iceland - GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)
- GreenBytes - Reducing food waste and increasing profit in restaurants. (H)
- Gull úr Grasi - Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)
- IceWind - Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)
- Kaja Organic - Jurtamjólkur verksmiðja (V)
- Melta - Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)
- Skógarplöntur ehf. - Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)
- Vínland Vínekran - Vínrækt, víngerð, veitingarstaður og vínmeðferða Spa (S)
- YGG - Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)
Í valnefnd sátu Sigurður Markússon, forstöðumaður nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, meðstofnandi og eigandi Iceland Innovation Week, Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri viðskipta- og vöruþróunar hjá Íslenskum Verðbréfum, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóra nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brimi og Kolfinna Kristínardóttir, verkefnastjóri hjá KLAK - Icelandic Startups.
Að verkefninu Norðanátt standa, Eimur, SSNE, SSNV, RATA og Hraðið Húsavík með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Hópurinn vinnur í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins sem hraðar framþróun og nýsköpun.