Niceair gerir hlé á allri starfsemi
Niceair hefur aflýst flugi frá og með morgundeginum og gerir hlé á allri sinni starfsemi um óákveðinn tíma. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri félagsins, hefur staðfest þetta við bæði RÚV og mbl.is. Ástæðuna segir hann þá að HiFly, erlendur samstarfsaðili Niceair, stóð ekki í skilum við afborganir til flugvélaeigenda.
Leysist kannski fyrir sumarið
Þorvaldur Lúðvík segir við RÚV að þrátt fyrir það að Niceair hafi greitt allar sínar afborganir, hafi þær ekki skilað sér til eiganda flugvélarinnar. Því hafi þeir misst flugvélina og er gert ókleift að uppfylla skyldur sínar gagnvart flugfarþegum.
Þorvaldur segir á mbl.is að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort starfsfólki félagsins verði sagt upp. „Það gæti vel verið að þetta leysist fyrir sumarið. Okkur er gert ókleift að halda áfram að selja miða á meðan við erum ekki klár með vél. Við erum búin að róa lífróður að reyna að finna vél undanfarna daga,“ segir Þorvaldur við mbl.is.
Fjármögnun var lokið
Í tilkynningu frá félaginu segir að þrátt fyrir góðan árangur á síðastliðnu ári, sterka bókunarstöðu og góðar horfur inn í árið, þá sé komin upp staða sem geri Niceair ómögulegt að veita þá þjónustu sem til stóð.
„Þetta er sorgleg niðurstaða í ljósi þess árangurs sem náðst hefur til þessa og góðra framtíðarhorfa,auk þess sem félagið hefur rétt lokið við fjármögnunarlotu sem tryggja á rekstur þess fram veginn, en sú vegferð hefur staðið yfir frá áramótum. Við höfum haldið úti reglulegu áætlunarflugi milli Norðurlands og Kaupmannahafnar og Tenerife síðan í júní á síðastliðnu ári með 71% sætanýtingu.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson