Nespresso-verslun opnuð á Glerártorgi
Nespresso hefur opnað verslun á Glerártorgi Akureyri. Hún bætist þá við verslanir sem fyrir eru í Kringlunni, Smáralind og á netinu. Verslunin er staðsett á ganginum við aðalinngang verslunarmiðstöðvarinnar.
„Það er von okkar að með því að opna verslun á Akureyri náum við betur að þjónusta íbúa á norðurlandi. Verslunin hefur verið opin í nokkra daga til að þjálfa starfsfólk og hafa viðtökurnar verið mjög góðar nú þegar. Í dag opnar hún svo formlega og munum við að sjálfsögðu vera með opnunartilboð á Glerártorgi þar sem allar kaffivélar og mjólkurflóarar verða á 20% afslætti,“ segir Ívar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Nespresso á Íslandi, í fréttatilkynningu.
Einföld hugmynd
„Saga Nespresso byrjaði á einfaldri en byltingakenndri hugmynd sem var sú að gera öllum kleift að búa til fullkominn espresso líkt og þjálfaður kaffibarþjónn,“ segir í tilkynningunni.
„Nespresso leitast við að bjóða kaffiunnendum allsstaðar í heiminum upp á fullkomna upplifun þegar kemur að kaffi en vörumerkið stendur fyrir gæði og nýsköpun. Nespresso byggir metnað sinn á að bjóða hágæða kaffi og kaffivélar sem eru einfaldar og þægilegar í notkun, ásamt aukahlutum og sérsniðna þjónustu.
Nespresso er leiðandi á markaði í framleiðslu á hágæða kaffi í hylkjum, sem gert er úr besta mögulega hráefni. Álið í hylkjunum er 100% endurvinnanlegt og allstaðar þar sem viðskiptavinir Nespresso á Íslandi kaupa eða fá afhent kaffi er hægt að skila notuðum hylkjum til endurvinnslu.
Nespresso er með höfuðstöðvar í Lausanne í Sviss og starfar í 70 löndum, rekur yfir 800 verslanir með um 13.900 starfsmönnum.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Nespresso: www.nestle-nespresso.com.“