Nemendur og starfsfólk fengu viðurkenningar
Fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrar veitti á dögunum viðurkenningar fyrir framúrskarandi skólastarf í vetur, bæði nemendum og starfsfólki.
„Markmiðið með viðurkenningunum er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir vinna. Viðurkenningin er einnig staðfesting á að viðkomandi nemandi, starfsmaður eða skóli er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenningin nær til,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
„Óskað var eftir tilnefningum frá skólasamfélaginu um nemendur, starfsfólk eða verkefni sem talin voru hafa skarað fram úr í starfi skólanna á síðasta skólaári. Valnefnd, sem skipuð var fulltrúum frá fræðslu- og lýðheilsuráði, Samtökum foreldra og Miðstöð skólaþróunar við HA, fór yfir allar tilnefningar og lagði fram tillögu til fræðslu- og lýðheilsuráðs til samþykktar.“
Athöfnin var í Hofi og hófst á tónlistaratriði. Mahaut Ingiríður Matharel, nemandi í Tónlistarskólanum á Akureyri, flutti An Priére eftir Fauré ásamt Daníel Þorsteinssyni píanóleikara. Eva Hrund Einarsdóttir formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs afhenti síðan 24 viðurkenningar til nemenda og starfsfólks.
Viðurkenningar hlutu:
- Clara Victoria Höller, nemandi í Brekkuskóla, fyrir framúrskarandi árangur í námi – sérstaklega í íslensku.
- Sigrún Karen Yeo, nemandi í Glerárskóla, fyrir jákvæðni, listræna hæfileika og fyrir að vera framúrskarandi félagi.
- Sigrún Dalrós Eiríksdóttir, nemandi í Glerárskóla, fyrir leiðtogahæfni, að vera jákvæð fyrirmynd og góður félagi.
- Patrekur Ingólfsson, nemandi í Hríseyjarskóla, fyrir samskiptahæfni, að vera jákvæð fyrirmynd ásamt því að bæta og auðga bekkjar- og skólaandann.
- Lilja Gull Ólafsdóttir, nemandi í Lundarskóla, fyrir góðan námsárangur, leiðtogahæfileika, frábæra frammistöðu í íþróttum og tónlistarnámi ásamt að vera jákvæð fyrirmynd.
- Amanda Eir Steinþórsdóttir, nemandi í Naustaskóla, fyrir listsköpun og að láta fjölbreytileika og jafnrétti skipta sig miklu máli.
- Richard Örn Blischke, nemandi í Naustaskóla, fyrir góðan námsárangur, hjálpsemi, þrautsegju og almenna vinnugleði.
- Natalía Rós Friðriksdóttir, nemandi í Oddeyrarskóla, fyrir að vera metnaðarfull, jákvæð, umhyggjusöm og góður skólaþegn.
- Sigþór Árni Sigurgeirsson, nemandi í Oddeyrarskóla, fyrir að vera jákvæð fyrirmynd í námi, hegðun og framkomu.
- Hugrún Sigmundsdóttir, Hulduheimar – Sel, fyrir fagleg vinnubrögð með hagsmuni barna í fyrirrúmi.
- Sævar Árnason, Brekkuskóla, fyrir framúrskarandi stærðfræðikennslu.
- Sólrún Eyfjörð Torfadóttir, Brekkuskóla, fyrir framúrskarandi starfshætti.
- Fríða Pétursdóttir, Glerárskóla, fyrir framúrskarandi kennslu, fagmennsku og jafningjastuðning, sérstaklega við nýliða.
- Ásdís Elva Kristinsdóttir, Giljaskóla, fyrir framúrskarandi kennsluhætti.
- Kristín Irene Valdemarsdóttir, Lundarskóla, fyrir fagmennsku, jákvæðni, að vera góður samstarfsfélagi og vinnu með líðan nemenda í skólastarfi.
- Margrét Rún Karlsdóttir, Lundarskóla, fyrir fagmennsku, þekkingu, reynslu og framúrskarandi starfshætti.
- Guðrún Valdís Eyvindsdóttir, Naustaskóla, fyrir að vera öflugur stuðningsfulltrúi með stórt hjarta.
- Kristín Hallgrímsdóttir, Oddeyrarskóla, fyrir framúrskarandi starfshætti og hlýlegt viðmót.
- Helga Lyngdal, Síðuskóla, fyrir vel unnin störf sem deildarstjóri.
- Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, Síðuskóla, fyrir nýbúakennslu.
- Klappir, fyrir innleiðingu réttindaskóla Unicef, þar sem barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna er hafður að leiðarljósi í öllu starfi skólans.
- Kiðagil – starfsmenn Sóleyjar, fyrir faglega nálgun í læsi.
- Kiðagil – starfsmenn Gleym mér ei, fyrir faglega nálgun í læsi.
- Naustaskóli – kennarar á miðstigi, fyrir þróunarverkefni í íslensku – Strákar lesum saman – Læsi fyrir lífið.