Fara í efni
Fréttir

„Mjög ánægður með afgerandi niðurstöðu“

Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Einingu-Iðju samþykkti nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Rafrænni kosningu lauk í dag og 83,93% þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu samninginn.

Niðurstaðan var raunar sú sama í öllum 17 félögum Starfsgreinasambandsins (SGS); samningurinn var alls staðar samþykkti með miklum yfirburðum. Hann gildir afturvirkt frá 1. nóvember síðastliðnum til 31. janúar 2024.

„Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð með afgerandi niðurstöðu. Það að tæp 84% þeirra sem kusu skyldu samþykkja samninginn segir okkur að það var rétt að skrifa undir þennan skammtímasamning,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, við Akureyri.net.

Þátttakan í atkvæðagreiðslunni var næst mest hjá Einingu-Iðju af öllum félögum SGS – en þó kusu ekki nema um fjórðungur félagsmanna hér fyrir norðan.

Niðurstaðan hjá Einingu-Iðju var þessi:

  • Á kjörskrá voru 3530 en 921 kaus – 26,09%
  • sögðu 773 – 83,93%
  • Nei sögðu 93 – 10,10%
  • Tóku ekki afstöðu 55 – 5,97%

„Eftir því sem auðveldara er að greiða atkvæði því færri gera það. Mér finnst það skrýtið að nálægt 75% félagsmanna skuli ekki taka þátt í atkvæðagreiðslunni því það tekur ekki nema um það bil mínútu. Einn sagði mér að það hefði tekið hann 22 sekúndur,“ sagði Björn í dag.

„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með niðurstöðuna, eins og ég sagði áðan, en best væri að sem allra flestir segðu skoðun skoðun sína, hvort sem hún er jákvæð eða neikvæð. Ég túlka þetta reyndar þannig að fólk hafi verið mjög sátt og talið öruggt hver niðurstaðan yrði, en samt er best að sem flestir taki alltaf þátt í atkvæðagreiðslum sem þessari.“

Björn bendir þó á að mjög margir hafi komið að undirbúningi kröfugerðar á sínum tíma, um 1500 manns með beinum eða óbeinum hætti, og skilaboðin þá hafi einmitt verið skýr; að samið yrði fljótt þannig að nýr samningur tæki við af þeim gamla en ekki þyrfti að bíða, svo og að launahækkarnir yrðu með þeim hætti að kaupmáttur ykist. „Þess vegna er niðurstaðan í kosningunni jákvæð og ég verð að segja að það er líka jákvætt að sá áróður sem hafður var uppi skilaði ekki árangri; sumir lögðu mikið á sig til að reyna að fá samninginn felldan en sem betur fer tókst það ekki.“