Fara í efni
Fréttir

Meintur ISIS-liði handtekinn og fluttur til Grikklands ásamt konu og sex börnum

Þrír karlmenn voru handteknir í lögregluaðgerðum á Akureyri í morgun. Tveimur hefur verið sleppt en þriðji maðurinn var fluttur til Grikklands ásamt eiginkonu sinni og sex börnum á aldrinum 6 mánaða til 16 ára og lenti vélin þar nú fyrir skömmu. Hann er talinn meðlimur í hryðjuverkasamtökunum Íslamska ríkinu (ISIS).

Þetta kemur fram í tilkynningu sem embætti Ríkislögreglustjóra sendi frá sér rétt í þessu.

Eftir að mennirnir voru handteknir í morgun var gerð húsleit á tveimur stöðum og lagði lögreglan hald á farsíma og peninga.

Um fjölskylduna sem flutt var úr landi í morgun segir:

„Fjölskyldan kom hingað til lands í september og sótti um alþjóðlega vernd hér á landi en var synjað á þeim forsendum að þau eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi.“

Einnig segir:

„Aðgerðir lögreglu hafa staðið yfir síðan í nóvember í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld, þar á meðal Europol, vegna upplýsinga um að fjölskyldufaðirinn sé meðlimur í Íslamska ríkinu, ISIS.

Mikilvægt þótti að tryggja öryggi og velferð fjölskyldunnar í aðgerðinni í morgun og voru því starfsmenn félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðismenntað starfsfólk ásamt fjölda lögreglumanna á vettvangi.

Aðgerð lögreglu tókst vel og er nú lokið en rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi og því ekki hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu.“