Fara í efni
Fréttir

Margir skemmtu sér á skíðum í Hlíðarfjalli

Ljósmyndir: Þorgeir Baldursson

Nokkur hundruð manns lögðu leið sína á skíðasvæðið í Hlíðarfjall í dag, jóladag. Veðrið var frábært, nokkurra stiga frost og logn, og fólk naut útivistarinnar í botn, hvort sem það brunaði niður brekkurnar eða gekk á skíðum.  Lyfturnar voru í gangi frá klukkan 12.00 til 16.00 og hleypt verður í brekkurnar á sama tíma á morgun.

Þor­geir Bald­urs­son skellti sér í fjallið með myndavélina.