Magni Rafn Ragnarsson las best „Upphátt“
Magni Rafn Ragnarsson úr Lundarskóla sigraði í upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri sem fram fór í gær. Keppnin – sem ber heitið Upphátt – var haldin í Hömrum í menningarhúsinu Hofi. Hún var nú haldin í 22. skipti.
Það voru nemendur í 7. bekk sem tóku þátt. Áður en að lokahátíðinni kom hafði hver og einn skóli haldið forkeppni þar sem tveir fulltrúar voru valdir til að keppa fyrir hönd skólans. Sjö skólar áttu fulltrúa í keppninni „og því voru það 14 hæfileikaríkir nemendur sem lásu part úr sögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason og ljóð eftir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,“ að því er segir á vef Akureyrarbæjar í dag.
Í dómnefnd sátu Vilhjálmur Bergmann Bragason, Hólmkell Hreinsson og Eyrún Huld Haraldsdóttir „og hlutskipti hennar var ekki auðvelt því þátttakendur stóðu sig allir með mikilli prýði.“
Verðlaunasæti Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri 2023 hrepptu:
- Magni Rafn Ragnarsson, Lundarskóla, 1. sæti
- Arna Lind Jóhannsdóttir, Síðuskóla, 2. sæti
- Torfhildur Elva F. Tryggvadóttir, Brekkuskóla, 3. sæti
Í aðdraganda hátíðarinnar var einnig blásið til keppni meðal 7. bekkja um besta veggspjaldið. Teikning eftir Unu Björk Viðarsdóttur nemanda í 7. bekk Glerárskóla sigraði og prýddi veggspjald Upphátt 2023, viðurkenningarskjöl og boðskort keppninnar.
„Fyrir keppni sem þessa þá leggja bæði nemendur og kennarar talsverða vinnu við undirbúning, en upphaf hennar er á degi íslenskra tungu, 16. nóvember ár hvert. Sá hluti keppninnar er kallaður ræktunarhluti þar sem nemendur 7. bekkjar leggja sérstaka áherslu á upplestur, vandaðan framburð, framkomu og túlkun orða,“ segir á vef bæjarins. „Ómissandi þáttur þessarar hátíðlegu stundar er tónlistarflutningur nemenda í Tónlistarskólanum á Akureyri í sem var í umsjón Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur og Ásdísar Arnardóttur. Þá flutti Brynhildur Þórarinsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri og barnabókahöfundur hvatningu til krakkana og annarra áheyrenda.“