Fara í efni
Fréttir

Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn

Maðurinn sem féll í Fnjóská um kvöldmatarleytið í gær fannst látinn í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Tilkynningin er svohljóðandi:

Tvítugur maður fannst látinn í Fnjóská í Dalsmynni, norðvestan við Ártún í Grýtubakkahreppi, nú fyrir skömmu. Leitarhópar hafa verið afturkallaðir. Rannsókn málsins er í höndum lögreglu.