Fréttir
Lokatölur: L-listinn með 3 fulltrúa – B og D 2, F, S, M og V fá 1 fulltrúa – átta nýliðar – kjörsókn 64,1%
15.05.2022 kl. 04:10
Oddvitarnir níu voru spenntir rétt áður en fyrstu tölur voru lesnar upp. Frá vinstri: Sunna Hlín Jóhannesdóttir Framsókn, Heimir Örn Árnason Sjálfstæðisflokki, Brynjólfur Ingvarsson Flokki fólksins, Ásgeir Ólafsson Lie sem var í 2. sæti hjá Kattaframboðinu, Gunnar Líndal Sigurðsson L-lista, Hlynur Jóhannsson Miðflokki, Hrafndís Bára Einarsdóttir Pírati, Hilda Jana Gísladóttir Samfylkingu og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Vinstri grænum. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Lokatölur hafa verið birtar í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri. L-listinn bæjarlisti Akureyrar bætir við sig einum manni og fær þrjá, Flokkur fólksins, sem bauð fram í fyrsta skipti á Akureyri, fékk einn bæjarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkur og Samfylking misstu bæði einn mann.
Niðurstaðan er þessi:
- L-listi 1.705 atkvæði – 18,7% – 3 bæjarfulltrúar (var með 2)
- Sjálfstæðisflokkur 1.639 atkvæði – 18,0% – 2 bæjarfulltrúar (var með 3)
- Framsókn 1.550 atkvæði – 17,0% – 2 bæjarfulltrúar (var með 2)
- Flokkur fólksins 1.114 atkvæði –12,2% – 1 bæjarfulltrúi (nýtt framboð)
- Samfylking 1.082 atkvæði – 11,9% – 1 bæjarfulltrúi (var með 2)
- Miðflokkur 716 atkvæði – 7,9% – 1 bæjarfulltrúi (var með 1)
- Vinstri grænir 661 atkvæði – 7,2% – 1 bæjarfulltrúi (var með 1)
- Kattaframboð 373 – 4,1% – enginn bæjarfulltrúi
- Píratar 280 atkvæði – 3,1% – enginn bæjarfulltrúi
Auðir seðlar eru 282 (3,0%) og ógildir 20 (0,02%)
Á kjörskrá voru 14.688 en 9.422 kusu – 64,1%
Bæjarfulltrúarnir 11 á Akureyri verða þessir. Aðeins þrír, þeir feitletruðu, sátu í bæjarstjórninni á nýliðnu kjörtímabilinu.
- L-listi – Gunnar Líndal Sigurðsson, Elma Eysteinsdóttir, Halla Björk Reynisdóttir
- Framsókn – Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Gunnar Már Gunnarsson
- Sjálfstæðisflokkur – Heimir Örn Árnason, Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Flokkur fólksins – Brynjólfur Ingvarsson
- Samfylking – Hilda Jana Gísladóttir
- Miðflokkur – Hlynur Jóhannsson
- Vinstri græn – Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir