Fara í efni
Fréttir

Lionsklúbbar bjóða upp á blóðsykursmælingu

Eydís Eyþórsdóttir og Ólafur Sveinn Traustason alsæl með niðurstöðu blóðsykursmælingar þegar Lionsmenn buðu upp á þær á Glerártorgi fyrir ári síðan. Synir hjónanna, Eyþór Ingi og Ingvar Óli, fylgjast með. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Lionsklúbbar á Akureyri og nágrenni bjóða upp á blóðsykursmælingar á Glerártorgi á morgun, laugardag, eins og þeir hafa gert undanfarin ár.

„Sykursýki er oft falin en mikilvægt er að greina hana á byrjunarstigi svo koma megi í veg fyrir alvarlegar aukaverkanir. Sykursýki er efnaskiptasjúkdómur sem dregur nafn sitt af auknu sykurmagni í blóði,“ segir í tilkynningu frá Lions. „Orsök sykursýki er ekki þekkt og sjúkdómurinn er ólæknandi en með réttri meðhöndlun er hægt að halda sjúkdómnum í skefjum og forðast fylgikvilla.“

Boðið verður upp á ókeypis mælingu frá klukkan 13.00 til 15.00 á morgun. Það eru Lionsklúbbarnir fjórir á Akureyri og Lionsklúbbarnir tveir í Eyjafjarðarsveit sem bjóða upp á mælinguna ásamt Samtökum sykursjúkra á Norðurlandi. Klúbbarnir eru Hængur, Ylfa, Ösp,  Vitaðsgjafi og Sif.

„Sykursýki 1 getur greinst hvenær sem er á lífsleiðinni. Um er að ræða sjálfsofnæmissjúkdóm sem þýðir að líkaminn hefur brugðist við utanaðkomandi áreiti með myndun mótefna sem síðan taka þátt í að eyðileggja vissar frumur líkamans hratt og örugglega,“ segir í tilkynningunni frá Lionsmönnum.

„Sykursýki af tegundinni 2 er vaxandi vandamál í heiminum öllum. Það er þó farið að hægja á greiningu nýrra tilfella á vissum svæðum eins og í hinum vestræna heimi en heildarfjöldinn sem er með þennan langvinna sjúkdóm er þó enn að aukast. Lions hreyfingin leggur hér lið. Þótt við þekkjum öll dæmi um að beinar blóðsykurmælingar hafi svipt hulunni af ógreindri sykursýki einstaklinga er ekki síður mikilvægt að fræða og vekja athygli almennings með fjölbreyttum hætti.“